Myndaviðgerðir

Ég sérhæfi mig í að koma skemmdum eða illa förnum myndum aftur til síns fyrra horfs. Hvort sem það er rifin ættarmynd, dofnir litir eða dýrmætar myndir sem hafa orðið fyrir tjóni.

Ég lagfæri rispur, rifur og skemmdir, litaleiðrétti og get breytt bakgrunni eftir þínum óskum. Einnig býð ég upp á að lita svarthvítar myndir.

Þjónusta Verð
Einföld lagfæring (minni rispur, létt litaleiðrétting) frá 500 kr / mynd
Miðlungs lagfæring (rifur, meiri skemmdir, bakgrunnsbreytingar) frá 1.500 – 3.000 kr / mynd
Stærri viðgerðir eða breytingar (miklar skemmdir, stærri breyting, samsetning úr brotum) Tilboð

Svona er ferlið

  • Þú hefur samband og ég geri tilboð í verkið.
  • Ljósmyndirnar get ég sótt til þín á höfuðborgarsvæðinu án kostnaðar.
  • Myndirnar skanna ég inn og lagfæri eða breyti
  • Vinnslutími fer eftir umfangi en ef miðað er við að lagfæra 5 myndir þá tekur það 3 til 5 daga.
  • Lagfærðu myndirnar sendi ég á stafrænu formi og skila upprunalegu myndunum.
  • Ef óskað er eftir prentun:
    • Ég get séð um umsýslu og pöntun. Prentað er hjá Pixel.

    • Prentunin tekur 3–5 daga

    • Myndir eru afhentar tilbúnar – jafnvel heim að dyrum á höfuðborgarsvæðinu.

    • Verðskrá